Góđar fréttir ;)Helga Valey Erlendsdóttir

Við Hjalti erum hálfgert ævintýrafólk og gerum oft stór plön og markmið sem krefjast þess að þúsund hlutir þurfa að ganga upp svo allt fari samkvæmt áætlun. Nú höfum við einmitt gert svoleiðis plan - við erum að flytja suður og ég ætla að reyna komast í framhaldsnám í sálfræði við HÍ. Til að þetta gangi þurfum við auðvitað að finna húsnæði fyrir sunnan ( sem setur okkur ekki á hausinn) og ég þarf að fá inngöngu í HÍ.

Í fyrradag var ekkert af þessu komið en ég var samt byrjuð að pakka niður í kassa og undirbúa flutning út í óvissuna. Nú höfum við fengið íbúð svo hálfur sigurinn er unnin. Við fengum frábæra íbúð á Kelissvæðinu- gamla varnarsvæðinu í Keflavík eða Reykjanesbæ eins og það heitir víst núna. Þar leigjum við 150 fm. íbúð fyrir 80 þús. með öllu og interneti líka. Svo eru margar ferðir með rútu á dag til Reykjavíkur og baka sem er frítt fyrir námsmenn. Svo þetta lítur allt ágætlega út - vantar bara svar frá HÍ.

Ég get ekkert gert nú nema bíða og vona og bið ég þig að gera það með mér. Við stóðum í mjög svipuðum sporum þegar við vorum á leið til Svíþjóðar. Þá var búið að plana allt vel en íbúð og innganga í skólan kom ekki fyrr en rétt fyrir brottför. Það small allt einhvern veginn og gekk upp og er ég að vona að þetta geri það líka.

Jæja ég ætla út að njóta veðurblíðunnar- nenni ekki að hanga inni í dag.

Koss á ykkur öll,
Valey,

Kreppa í blogginu ?Helga Valey Erlendsdóttir

Dugnaðurinn að blogga hefur mjög svo dvínað enda svo sem nóg annað að gera í tölvunni, t.d. Facebook sem tekur mikinn tíma að sinna, íbúðarleit á hinum ýmsu vefum og svo vinna Viðskiptaáætlunar fyrir námskeiðið Brautargengi sem ég skellti mér á í febrúar og stendur fram í maí.

En betra seint en aldrei- er það ekki?

Það er svo mikið hægt að ræða að ég veit ekki hvar ég á að byrja, komandi kosningar, efnahagsástandið- bankahrunið, viðhorf  íslendinga til kreppunnar og svo margt fleira.

Ég las áhugaverðan bakþanka aftan á Fréttablaðinu í gær sem endurspegla eiginlega hvað gerðist á Íslandi síðustu misseri. Þar skrifaði Júlía Margrét Alexandersdóttir svo biturlega um fólkið sem var erlendis í námi eða öðru og kom svo heim, fékk áfall yfir ástandinu á Íslandi og singdi sig meðan það sönglaði að það hefði sko ekki verið á landinu til að taka þátt í vitleysunni.

Ég viðurkenni að í uppsveiflunni fann maður eins og aðrir að allt var hægt, ef fólk bara vildi- það var þó ekki þar með sagt að allir hefðu tekið þátt og misst sig í neyslunni. Uppsveiflan náði heldur aldrei hámarki hér úti á landi og þó ég hafi ekki verið fjarverandi af landinu nema í eitt ár- FÉKK ÉG ÁFALL ÞEGAR ÉG KOM HEIM!

Í sumar voru hér voru allir komnir á risastóra jeppa - með enn stærri hjólhýsi eða aðra skuldahala aftan í. Ég man sérstaklega eftir einu skipti eftir að bílinn minn var komin heim frá Svíþjóð og við Hjalti fórum á Glerártorg síðasta sumar. Við lögðum á stæðinu rétt hjá Rúmfatalagernum og fórum inn. Þegar við komum út aftur sást hvergi í bílinn okkar því hann var orðinn umkringdur af risastórum jeppum. Við litum í kringum okkur og reyndum hvað við gátum en fundum engan annan fólksbíl á svæðinu- það fannst mér vægast sagt skrýtin upplifun.  Ég man líka eftir því þegar við Hildur vorum í Hagkaup að finna afmælisgjöf handa pabba hennar og hún hafði fundið pínulítið ilmvatnsglas- Pínulítið- eiginlega næstum prúfa. og ég spurði starfsstúlkuna hvað hún kostaði. Tæplega 8.000 kr. Ég marg spurði og trúði því bara ekki. Stúlkan yppti bara öxlum og sagði með tyggjóið sitt- það hefur bara allt hækkað svo mikið- þetta er bara svona. Ég man líka þegar ég ætlaði að gefa dóttur minni bragðaref í ísbúð í Mosfellsbæ síðasta sumar- en miðstærð af ísnum kostaði tæplega 1000 krónur. Þá sagði afgreiðsludaman, það hefur bara allt hækkað- bensín og svoleiðis- heimsmarkaðsverðið þú veist- !

Þetta fannst mér mjög furðulegt en algerlega í takt við flest annað á Íslandi árið 2008. Það er hægt að lýsa þessu í einu orði sem gerðist á landinu okkar- hvort sem Júlía Margrét sér það eða ekki- GRÆÐGI- nánar tiltekið Peningagræðgi.

En græðgi verlsunareigenda og rekstraraðila lítilla ísbúða er enginn í samanburði við græðgi sumra auðmanna íslands. Hún var eiginlega bara viðbjóðsleg og manni verður illt að heyra og sjá sumar fréttirnar sem hafa verið í sjónvarpi undanfarið.

Ég skil vel að fólk á mínum aldri sem missti sig ekki í neyslunni sé reitt og vilji ekki gjalda græðgi annarra- hvernig á þetta fólk að geta byggt upp líf sitt- ef til vill nýkomið úr skóla og á ekki sparnað heldur aðeins lán. Hvernig á þetta fólk að koma sér upp öruggu þaki yfir höfuðið?
Ég finn mjög takmarkað til með þeim fasteignaeigendum sem sitja uppi með tvær eignir- þá nýju og þá gömlu. Ef viðkomandi sjá ekki hvers vegna, er þeim vart við bjargandi. Græðgin aftur...

Bakþankar Fréttablaðsins í gær önguðu af slæmri samvisku einhvers sem reyndi að finna blóraböggul annars staðar. Ekki hægt- við erum öll saman í kreppunni og tókum flest þátt í uppsveiflunni á einn eða annan hátt. Auðvitað fær fólk áfall sem ekki hefur verið á Íslandi í nokkur ár. Enda lífsgæðin hér mikil ef þú ert tilbúin að borga fyrir þau- það er bara svo einfalt- en þú borgar líka dýru verði fyrir það.

Mér finnst huggun harmi gegn að allir skuli ganga í gegnum efnahagsþrengingarnar saman- það er ekki bara einn og einn heldur allir. Munið bara að peningar eru bara eitthvað sem maður getur alltaf unnið sér inn aftur- og í guðanna bænum ekki eyða öllum tímanum ykkar í að hafa áhyggjur af hlutum sem ekkert er hægt að gera við eða laga- t.d. skuldum sem ekki er hægt að greiða.

Jæja þá ég skal hætta blaðra,

bestu kveðjur,
Valey.

Nýtt ár - gamalt hár- ekkert sár- ţó er fár...Helga Valey Erlendsdóttir

Þá er árið 2009 gengið í garð og maður finnur alltaf betur og betur hvað tíminn flýgur áfram- meira með hverju árinu sem bætist á mann.

Litla nýfædda barnið er allt í einu orðið 5 mánaða og farið að mynda sér alls kyns skoðanir á hinu og þessu. Annars er Hanna Karítas þvílíkur engill og varla neitt sem þarf að hafa fyrir henni. Vill endilega fá fleiri svoleiðis ;)
Stóra barnið er eiginlega ekkert barn lengur og löngu búin að mynda sér skoðanir á flestu í heiminum hennar. Hildi Maríu gengur rosalega vel í skólanum og æfir fótbolta á fullu. Hún hefur líka þróað með sér einstaklega skemmtilegan húmor sem sumir eiga erfitt með að skilja en ég kann vel að meta hann og er ánægð með að hún geti svarað fyrir sig fullum hálsi (Hnyttin- svona eins og mamma hennar- heheh).

Anna systir er flutt norður og orðin karlmannslaus- frjáls og frí. Komin með fínasta herbergi á Akureyri og byrjuð í Verkmenntaskólanum. Hún á aðeins eina önn eftir og nær þá þeim merka áfanga í okkar fjölskyldu að fá stúdentspróf- frumkvöðull mikill ;)

Næstu vikur og mánuði verður krafan um að ég finni vinnu sífellt háværari enda lifir maður ekki á loftinu. Framundan eru svo þó nokkuð stór tímamót þar sem bæði húsaleigusamningur og starfsamningur rennur út eftir nokkra mánuði. Guð einn veit hvað gerist þá- kannski við förum bara til Alaska...já ég gleymdi að segja þér það Hjalti ;).....

Nei annars- best að halda sig við jörðina- þ.e. íslensku jörðina.

Seinnipartur síðasta árs og sjálfsagt eitthvað frameftir þessu ári hefur verið og verður án efa furðulegur tími. Mikið að gerast í þjóðfélaginu, sem og heiminum öllum og margt eftir að gerast enn. Hef grun um að við höfum aðeins séð brot af því sem á eftir að dynja yfir okkur.

En jákvæðnin er mikilvægari en nokkru sinni fyrr og því reynum við að finna hana einhvers staðar í geymslunni.

Hafið það sem allra best,
Valey.

Jól 2008Helga Valey Erlendsdóttir

GLEÐILEG JÓL !  NÆR OG FJÆR ;)

Styttist óđum!Helga Valey Erlendsdóttir

Nú fer að styttast óðum í að jólahátíðin gangi í garð og ég get ekki annað sagt en að á mínu heimili ríki almenn tilhlökkun og gleði í tilefni þess.

Við erum nú þegar búin að baka einu sinni en það búa svoddan úlfar hér að ég verð að baka meira á morgun ;) Það er bara gaman. Allt er löngu klárt- jólatréið komið á sinn stað- pakkarnir klárir undir tréð og jólakortin komin í umslög- bíða þess einungis að vera borið út á þorláksmessu á meðan hangikjötið sýður og gefur með sér ómissandi jólailm.

Ég verð að segja að væntingar mínar til jólanna núna eru mun meiri en í fyrra þegar við Hjalti vorum tvö ein í Svíþjóð og áðfangadagkvöld fór í að fylgjast með manninum mínum setja saman byssu sem hann fékk að gjöf- óheyrislega spennandi og í anda hátíðarinnar ;) En núna verður fjölmennara hjá okkur- báðar dæturnar heima, Anna, Siggi og Linda Sigga-dóttir ásamt tengdamömmu koma til okkar í mat og erum við öll staðráðin í að hafa gaman.

Ég hvet alla til að finna og hlusta á nýja jólalagið frá Baggalút sem heitir: Það koma vonandi jól- Frítt á : baggalutur.is

Það er vel þess virði- einstaklega flott lag finnst mér.

Jæja- kreppa skeppa
Veriði góð svo þið fáið nú í skóinn,
Valey.

Jólaföndur!Helga Valey Erlendsdóttir

Nú fer ég að hætta föndra jólaskraut í bili
-geri kannski meira á næsta ári-
þannig að ef einhver vill fá jólaskraut hjá mér fyrir þessi jól, endilega sendið mér línu
sem fyrst á:  helgavaley@gmail.com .


Bestu jólakveðjur,
Valey.

Jólakúlur - Jólabjöllur- JólahjörtuHelga Valey Erlendsdóttir


Handunnið jólaskraut til sölu.


Ýmsar tegundir í boði, jólabjöllur, jólakúlur, jólahjörtu o.fl.

Sýnishorn má finna í myndamöppu hér til hliðar.


Endilega hafið samband ef þið hafið áhuga og eins ef þið hafið séróskir varðandi litaval.

Þið getið einnig skilið eftir nafn og síma í athugasemdum og ég hef samband.

Valey sími:  8663419
helgavaley@gmail.com


Bjalla 13 cm.

Úti er alltaf ađ snjóa...Helga Valey Erlendsdóttir

Hér er allt snjóað í kaf og því gott að maður á nóg af kakói til að hlýja sér við. Vantar bara Andrésblöðin... Ég stórefast um að við komumst nokkuð á bílnum í dag, það hefur kynngt svoleiðis niður snjónum undanfarin sólarhring. Pallurinn er kominn á kaf og sér varla út á bílaplan fyrir fannfergi. Hjalti gallaði sig upp í snjófötin sín og kannaði stöðuna áðan og komst að þeirri niðurstöðu að óráðlegt væri að reyna hreyfa bílinn. Nú er fínt að þekkja fólk á jeppum. heheh. Mér finnst þetta fullsnemmt og hefði viljað bíða með þessa vetrarhörku þar til í desember. En þetta ýtir óneitanlega undir jólastemmninguna sem er fínt þessa dagana.

Ég er búin að vera á fullu í marga daga núna að föndra jólakúlur og bjöllur ofl. til að selja í Gallerýinu í sveitinni sem opnar um næstu helgi. Gallerýið er hjá Teigi í Eyjafirði og hvet ég alla til að kíkja þangað fyrir jólin. ;)





Það er um að gera að reyna finna eitthvað fallegt í kreppunni til að gleðjast yfir.

Hafið það sem allra best og reynið að halda á ykkur hita ;)

Valey.

Fiskibollur í bođi Njarđarstígs- Önnu!Helga Valey Erlendsdóttir

Sælt veri fólkið!
Ó það er svo langt síðan ég fór hér inn til að blogga en hér er ég nú svo haldið ykkur fast.

Við skelltum okkur til Vestmanneyja um síðustu helgi og áttum yndislega ferð að utanskilinni sjóferðinni með Herjólfi til Eyja. Þar var öllu skilað í klósettskálina sem til var og allir hálf myglaðir nema mamma sem naut þess að sitja í veltingnum og brosa að okkur hinum. En ferðin til baka var ekki jafn slæm svo við skildum öll sátt við Herjólf. Í Eyjum fór vægast sagt vel um okkur og fengum við konunglegar móttökur hjá Önnu og Sigurði. Anna sá til þess að gestina skorti ekkert og fór með okkur í frábæra skoðunarferð um eyjuna. Svo var að sjálfsögðu stoppað til að spranga og enduðu bæði Hjalti og Hildur á bakinu á jörðinni með tilheyrandi skrámum. Ég fór hins vegar svo varlega i sprangið og passaði að lyfta bara öðrum fætinum nokkra sentimetra frá jörðinni. Það var alveg nóg!!! (sjá mynd í albúmi)

Við höfðum svo heilt einbýlishús til afnota, sem systir mín og mágur eru að gera upp, og leið okkur undurvel þar, sérstaklega fyrir framan eldinn í arninum. Um nóttina urðu svo allir varir við mikinn umgang á efri hæð hússins sem aðeins var hægt að útskýra sem draugagang. En þeir vættir voru góðir í gegn og sjálfsagt bara svona glaðir að fá fólk í húsið.

Ástarþakkir fyrir okkur Anna og Siggi og við komum pottþétt aftur til ykkar við fyrsta tækifæri!!!

Vikan leið svo með tilheyrandi hversdagsleika sem var svo aðeins brotinn upp í gærkveldi þegar Jónas, Dísa, Sigrún og synir þeirra komu til okkar og var spilað og drukkið fram á nótt. Dísa var eiginlega í hlutverki jólasveinsins og færði mér geggjaða brjóstapumpu sem hún á skilið endalausar þakkir fyrir. Hjalti gaf dóttur sinni svo mjólk úr pela í fyrsta skiptið í morgun og gekk það eins í sögu. Ég er ekki frá því að Hanna Karítas líti föður sinn öðrum augum eftir það.

Lífi er svo frábært!!! Þrátt fyrir skelfilegt ástand í efnahagslífinu-þá nýt ég hverrar mínútu hvers dags og get vart beðið eftir næsta.

Hafið það sem allra best og í guðs bænum takið nú út úr bankanum peningana ykkar áður en Landsbankinn og Glitnir breytast í Glansbankann.

Valey.

 

Fyrsta myndinHelga Valey Erlendsdóttir

Fyrir ykkur sem óskað hafa eftir því má sjá fyrstu opinberu myndina af litla krílinu hér fyrir neðan.

Reffileg í ömmustól

Kv. Valey

Valey

  • Nafn: Helga Valey Erlendsdóttir
  • Símanúmer: 8663419
  • Hjúskaparstađa: Hamingjusamlega Harđgift

Auglýsing

Kćri Gestur!

Mundu eftir ađ skrifa í Gestabókina ;)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur

Ţađ er eitthvađ til í ţessu !!!

“The greatest achievement of humanity is not its works of art, science, or technology, but the recognition of its own dysfunction, its own madness.” - Eckhart Tolle, A New Earth, 2005.

Flutningur til Íslands